Lögfræðiaðstoð
Lögfræðiaðstoð Orator er endurgjaldslaus lögfræðiaðstoð félags laganema við Háskóla Íslands. Aðstoðin felst í því að almenningi gefst kostur á að hringja inn nafnlaust og bera upp spurningar um lögfræðileg álitaefni sér að kostnaðarlausu. Fyrir svörum sitja þá 2 - 3 laganemar í meistaranámi og lögmaður þeim til aðstoðar.
Síminn hjá Lögfræðiaðstoðinni er opinn á fimmtudagskvöldum frá kl. 19:30-22:00 í símanúmer 551-1012. Lögfræðiaðstoðin starfar frá september og fram í byrjun maímánaðar, að undanskyldu próftímabili laganema í desember.
Framkvæmdastjórar Lögfræðiaðstoðarinnar starfsárið 2012-2013 eru Davíð Ingi Magnússon, Gestur Gunnarsson og Gísli Logi Logason
Laganemar hafa ávallt verið bundnir þagnarskyldu við störf sín hjá Lögfræðiaðstoðinni.
Lögfræðiaðstoð Orator hefur verið starfrækt frá 15. janúar 1981 og fagnaði því 30 ára afmæli í fyrra. Á hverju starfsári er Lögfræðiaðstoðin vel nýtt og ljóst er að mikil þörf er á endurgjaldslausri aðstoð sem þessari. Lögfræðiaðstoðin veitir fólki upplýsingar um réttarstöðu þess og aðrar lögfræðilegar leiðbeiningar. Mest er leitað aðstoðar á sviði hjúskaparréttar og sifjaréttar en einnig er mikið spurt um kröfurétt og samningarétt. Lögfræðiaðstoðin er góð þjálfun fyrir laganema í námi og starfi og er jafnan mikil aðsókn af þeirra hálfu í sjálfboðavinnu þessa.







