Hleð Viðburðir

« Allir Viðburðir

Framhaldsaðalfundur

16.apríl @ 18:00 - 21:00

Kæru félagsmenn.
Þann 16. apríl nk. mun framhaldsaðalfundur fara fram kl. 18:00-21:00 í L101.
Á fundinum tökum við upp þráðinn þar sem frá var horfið á síðasta aðalfundi.
Boðið verður upp á pizzur og fljótandi veigar.🍻
Dagskrá fundar er skv. 4., 8.-17. lið 12. gr. laga Orators eftirfarandi:
8. Kór.
9. Kosning ferðamálráðs
10. Kosning fulltrúa og varafulltrúa á deildarfundi lagadeildar, skulu þeir kosnir til tveggja ára. Fjöldi deildarfulltrúa skal fara eftir reglum Háskóla Íslands. Varaformaður félagsins er sjálfkjörinn deildarfundarfulltrúi til eins árs.
11. Kosning eins fulltrúa í náms- og kennslunefnd og annan til vara, til tveggja ára í senn. Varaformaður félagsins er sjálfkjörinn í náms- og kennslunefnd til eins árs.
12. Kosning fulltrúa í gæðanefnd, til tveggja ára í senn. Í gæðanefnd sitja tveir laganemar og skal einn kosinn til setu á hverjum aðalfundi.
13. Kosning ritstjóra GRÍMS GEITSKÓS.
14. Kosning ritstjóra Margmiðlunarnefndar.
15. Kjör tveggja skoðunarmanna. Hvorki mega þeir eiga sæti né hafa átt sæti í stjórn Orators eða vera, eða hafa verið, framkvæmdastjórar Úlfljóts. Skoðunarmenn skulu ráðfæra sig við gjaldkera stjórnar fyrri árs.
16. Kosning þriggja laganema í Lagaráð Orators, sbr. 15. gr.
17. Önnur mál.
Við hvetjum félagsmenn til að mæta!
Stjórn Orators 2026-27

Upplýsingar

  • Dagsetn: 16.apríl
  • Tími
    18:00 - 21:00

Staðsetning

  • L-101, Lögberg

Skipuleggjandi

  • Orator