Kennsluverðlaun Orators fyrir skólaárið 2025-2026 voru afhent í lok hátíðarmálþings Orators í dag, 11. febrúar.
Þetta er í 15. skiptið sem kennsluverðlaunin eru veitt og er markmið þeirra að heiðra þá kennara sem nemendur telja hafa skarað fram úr í kennslu við lagadeild Háskóla Íslands. Verðlaununum er auk þess ætlað að vera hvatning fyrir kennara sem og nemendur til þess að hafa áhrif á þróun og framfarir við kennslu deildarinnar.
Niðurstöður könnunarinnar endurspegla vel hve góðir kennarar eru við Lagadeildina okkar, og hve annt þeim er um að nemendur tileinki sér hinn júridíska þankagang og verði framúrskarandi lögfræðingar.
Nemendur voru beðnir um að senda inn tilnefningar og þátttaka var góð. Í ár var það Trausti Fannar Valsson sem hlaut flestar tilnefningar og hlaut hann þar af leiðandi kennsluverðlaun Orators fyrir skólaárið 2025-2026. Það sem skín helst í gegn í tilnefningum nemenda er mannleg nálgun Trausta og sterk leiðtogahæfni hans þar sem góð kennsla fer saman við virðingu, aðgengi og samvinnu.
Það er ljóst að Trausti er vel að þessum verðlaunum kominn og vill stjórn Orators óska Trausta innilega til hamingju með þessa viðurkenningu.