Þann 14. október sl. stóðu Orator og ELSA Ísland að málþingi sem bar yfirskriftina: Er netsala áfengis brot á einkaleyfi ÁTVR? Sjónum var beint að inntaki einkaleyfis ÁTVR, þeirri réttaróvissu sem ríkt hefur og framtíðarlöggjöf um netsölu áfengis á Íslandi.
Framsögumenn málþingsins voru Hafsteinn Dan Kristjánsson, prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík, Björn Sævar Einarsson, formaður IOGT, og Diljá Mist Einarsdóttir, alþingismaður.
Fundarstjóri var Elín Birna Yngvadóttir, funda- og menningarmálastýra Orators.
Orator þakkar framsögumönnum kærlega fyrir fróðleg erindi og áhorfendum fyrir góða mætingu og líflegar umræður.