Kennsluverðlaun Orators fyrir skólaárið 2024-2025 voru afhent í lok hátíðarmálþings Orators þann 12. febrúar sl.

Þetta er í 14. skiptið sem kennsluverðlaunin eru veitt og er markmið þeirra að heiðra þá kennara sem þykja hafa skarað fram úr í kennslu við lagadeild Háskóla Íslands. Verðlaununum er auk þess ætlað að vera hvatning fyrir kennara sem og nemendur til þess að hafa áhrif á þróun og framfarir við kennslu deildarinnar. 

Stjórn Orators óskaði eftir tilnefningum frá laganemum og bárust töluvert margar. Af þeim má dæma að nemendur lagadeildar eru virkilega ánægðir með marga kennara við deildina. Alls voru 14 kennarar tilnefndir til verðlaunanna en það var hann Gunnar Atli Gunnarsson sem hlaut kennsluverðlaun Orators fyrir skólaárið 2024 – 2025. Gunnar er í tilnefningum sínum sagður vera mjög skipulagður í kennsluháttum og fær í að miðla kennsluefninu. Þannig eykur hann skilning og áhuga nemenda á flóknu efni. Einnig er hann sagður vera aðgengilegur og innan handa fyrir pælingum nemenda sinna.

Gunnar er án vafa vel að þessum verðlaunum kominn og óskar stjórn Orators honum innilega til hamingju!